Fara verður með faglegri hætti yfir það hvort ásakanir á hendur sr. Friðriki Friðrikssyni, æskulýðsleiðtoga og stofnanda KFUM á Íslandi, um meint kynferðisafbrot eigi við rök að styðjast eða ekki. Þetta er mat hóps Skógarmanna, sem á síðustu mánuðum …

Séra Friðrik Ásakanir á hendur sr. Friðriki komu löngu eftir andlát hans.
Spursmál
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Fara verður með faglegri hætti yfir það hvort ásakanir á hendur sr. Friðriki Friðrikssyni, æskulýðsleiðtoga og stofnanda KFUM á Íslandi, um meint kynferðisafbrot eigi við rök að styðjast eða ekki. Þetta er mat hóps Skógarmanna, sem á síðustu mánuðum hefur farið ofan í saumana á málinu sem komst í hámæli á árinu 2023 í kjölfar útgáfu ævisögu sr. Friðriks sem Guðmundur Magnússon blaðamaður skrásetti. Í bókinni var að finna frásögn aldraðs manns sem sagði sr. Friðrik hafa káfað á sér þegar sá síðarnefndi var orðinn hrumur og gamall.
Hratt af stað atburðarás
Í kjölfar útgáfu bókarinnar varð uppi mikið fjaðrafok og var meðal annars ráðist í að fjarlægja styttu af sr. Friðriki sem staðið hafði áratugum saman
...