
Leiðtogar Frakklands, Bretlands, Þýskalands og Póllands munu í dag ferðast til Kænugarðs og ræða þar við Volodimír Selenskí Úkraínuforseta um gang Úkraínustríðsins og hvernig auka megi þrýsting á Rússa til þess að samþykkja skilyrðislaust vopnahlé.
Þetta verður í fyrsta sinn sem leiðtogar ríkjanna fjögurra heimsækja Úkraínu samtímis frá upphafi innrásarinar, en heimsókninni er m.a. ætlað að sýna fram á samstöðu ríkjanna fjögurra með Úkraínu, degi eftir að Rússar efndu til hátíðahalda í Moskvu í tilefni af sigurdeginum í Evrópu.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti flutti ræðu í gær á Rauða torginu, þar sem hann reyndi að réttlæta innrás sína í Úkraínu með vísan til síðari heimsstyrjaldar og baráttu Sovétríkjanna gegn nasismanum. Hét Pútín því að Rússar myndu sigra Úkraínumenn í allsherjarinnrásinni.
...