Fulltrúar Íslands funduðu í fyrradag með fulltrúum Bandaríkjanna á árlegum samráðsfundi ríkjanna tveggja um öryggis- og varnarmál í Washington-borg. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að öflug tvíhliða varnarsamvinna ríkjanna og staða …
NATO-æfing Fulltrúarnir ræddu m.a. aukna samvinnu í kafbátaleit.
NATO-æfing Fulltrúarnir ræddu m.a. aukna samvinnu í kafbátaleit. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Fulltrúar Íslands funduðu í fyrradag með fulltrúum Bandaríkjanna á árlegum samráðsfundi ríkjanna tveggja um öryggis- og varnarmál í Washington-borg. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kemur fram að öflug tvíhliða varnarsamvinna ríkjanna og staða alþjóðaöryggismála hafi verið meðal helstu umræðuefna á fundinum.

Kynnti íslenska sendinefndin þar jafnframt ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að setja varnar- og öryggismál í öndvegi sem og yfirstandandi vinnu við mótun stefnu í varnar- og öryggismálum fyrir Ísland.

Á fundinum áréttuðu ríkin tvö mikilvægi gagnkvæmra varnarskuldbindinga og vaxandi samstarfs um eftirlit og aðgerðir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Þá segir í tilkynningunni að rætt hafi verið um samvinnu ríkjanna í tengslum við kafbátaleit, þjónustuheimsóknir bandarískra kafbáta, uppbyggingu á

...