„Þetta gæti orðið gríðarlegt högg. Þarna eru um 130 starfsmenn ásamt öllum þeim sem sinna óbeinum störfum í þágu fyrirtækisins og einnig gæti þetta haft áhrif á fjölskyldur þeirra og aðra í samfélaginu
PCC BakkiSilicon Þingmaður hefur áhyggjur af stöðu fyrirtækisins.
PCC BakkiSilicon Þingmaður hefur áhyggjur af stöðu fyrirtækisins. — Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Þetta gæti orðið gríðarlegt högg. Þarna eru um 130 starfsmenn ásamt öllum þeim sem sinna óbeinum störfum í þágu fyrirtækisins og einnig gæti þetta haft áhrif á fjölskyldur þeirra og aðra í samfélaginu. Höggið yrði gríðarlegt ef af rekstrarstöðvun fyrirtækisins yrði og það er allt til þess vinnandi að reyna að sjá til þess að til stöðvunarinnar komi ekki, ef það er hægt með einhverju móti. En við verðum að vega það og meta og sjá hverju fram vindur á næstu dögum og vikum.“

Þetta segir Jens Garðar Helgason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, í samtali við Morgunblaðið, spurður um hina alvarlegu stöðu sem PCC BakkiSilicon á Húsavík er komið í. Fyrirsjáanlegt er að óbreyttu að rekstur fyrirtækisins stöðvist á næstu vikum sökum þess að verðfall

...