„Það eru alltaf færri sem fara á pósthús og svo vorum við á hrakhólum með húsnæðið í Firðinum,“ segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir forstjóri Póstsins um þá frétt Morgunblaðsins í gær að til stæði að loka útibúi Póstsins í Hafnarfirði

Póstþjónusta Póstboxin eiga að leysa pósthúsin af og fara um 40% af afhendingum Póstsins fram í gegnum póstbox. Opin allan sólarhringinn.
— Morgunblaðið/Eggert
Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
„Það eru alltaf færri sem fara á pósthús og svo vorum við á hrakhólum með húsnæðið í Firðinum,“ segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir forstjóri Póstsins um þá frétt Morgunblaðsins í gær að til stæði að loka útibúi Póstsins í Hafnarfirði.
„Við vorum á fyrstu hæðinni og vegna breytinga sem þar voru gerðar vorum við færð upp á 2. hæð og leigusamningurinn rann út. Þeir í Firðinum voru vissulega tilbúnir að gera eitthvað fyrir okkur en við töldum betra að losa þetta húsnæði, flytja hluta af starfseminni í Kópavoginn og um leið að halda áfram að fjölga póstboxunum sem eru orðin 7 í Hafnarfirði.“
Í póstboxum er bæði hægt að póstleggja og sækja póst og lýsir Þórhildur þeim eins og
...