
Ólafur E. Jóhannsson
oej@mbl.is
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis er nú með til skoðunar hvort stjórnvöld fari að lögum um póstþjónustu og hvort verið sé að niðurgreiða samkeppni Íslandspósts við einkaaðila á markaði.
Segir Vilhjálmur Árnason formaður nefndarinnar að svo virðist sem verið sé að niðurgreiða annað en kostnað vegna alþjónustukvaðarinnar. Það dragi bæði úr samkeppni og möguleikum einkaaðila til að veita betri þjónustu um land allt og vinni þannig gegn markmiðum laga.
„Samkeppnisaðilar Póstsins á markaði hafa lengi kvartað undan því að ríkið fari ekki að póstlögum og niðurgreiði í gegnum alþjónustukvöð Íslandspósts þjónustu sína á samkeppnismarkaði. Þetta varð til þess að Alþingi bað ríkisendurskoðanda um að gera úttekt á málinu. Ríkisendurskoðandi
...