Flug Vélin var á leið frá Toronto í Kanada til Istanbúl í Tyrklandi.
Flug Vélin var á leið frá Toronto í Kanada til Istanbúl í Tyrklandi. — AFP/Prakash Mathema

Flugmenn í farþegavél Turkish Airlines, sem var á leið norður yfir Langjökul í febrúar 2023, tókust óafvitandi á um stjórn vélarinnar þegar hún lenti í alvarlegri ókyrrð. Afleiðingarnar urðu þær að stýri aftengdist, vélin missti 8.000 feta hæð á einni mínútu og sjö manns slösuðust.

Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa kemur fram að orsök atviksins megi rekja til skorts á samvinnu og ástandsvitund flugmannanna. Aðstoðarflugmaður ýtti stýrinu fram á sama tíma og flugstjórinn togaði að sér, sem leiddi til þess að hvorugur hafði stjórn á vélinni. Samhliða reyndi sjálfvirka eldsneytisgjöfin að stjórna fluginu, sem gerði ástandið enn erfiðara.

Ókyrrðin stafaði af háloftafjallabylgjum sem höfðu verið yfir Íslandi klukkustundum saman. Veðurstofan gaf þó ekki út viðvörun fyrr en fjórum mínútum eftir atvikið, og þá ekki yfir því svæði þar sem atvikið átti sér stað.

Rann­sókn­ar­nefnd­in bein­ir þeim til­mæl­um til Veður­stof­unn­ar að bæta sjálf­virka grein­ingu

...