Stjórnvöld í Pakistan sökuðu í gær Indverja um að hafa dregið ríkin nær „stórátökum“ með loftárás sinni á Pakistan á miðvikudaginn. Indverjar sökuðu Pakistana um að hafa staðið að baki drónaárás í gær, sem gerð var á indverska hluta…
Pakistan Mótmælendur í Islamabad hrópa hér vígorð gegn Indverjum vegna átakanna í Kasmír-héraði, en rúmlega 50 manns hafa þegar fallið.
Pakistan Mótmælendur í Islamabad hrópa hér vígorð gegn Indverjum vegna átakanna í Kasmír-héraði, en rúmlega 50 manns hafa þegar fallið. — AFP/Aamir Qureshi

Stefán Gunnar Sveinsson

sgs@mbl.is

Stjórnvöld í Pakistan sökuðu í gær Indverja um að hafa dregið ríkin nær „stórátökum“ með loftárás sinni á Pakistan á miðvikudaginn. Indverjar sökuðu Pakistana um að hafa staðið að baki drónaárás í gær, sem gerð var á indverska hluta Kasmír-héraðs en árásin beindist einkum að flugvelli Srinagar, höfuðborgar Kasmír-héraðs.

Heyrðust tíu sprengingar í nágrenni flugvallarins, en þetta var önnur drónaárásin á jafnmörgum dögum sem gerð var á indverska hluta héraðsins. Pakistanski herinn hefur neitað því að hann standi að baki árásunum.

Ahmed Sharif Chaudhry, undirhershöfðingi og talsmaður pakistanska hersins, sagði í gær á blaðamannafundi sínum að ekki kæmi til greina af hálfu Pakistana að láta árás Indverja á miðvikudaginn ósvarað, en

...