Nýjar rannsóknir á skógarmítlum sem fundist hafa hér á landi leiða í ljós að hluti þeirra hefur borið með sér bakteríu sem getur valdið svonefndum Lyme-sjúkdómi. Nokkur tilfelli af þessum sjúkdómi hafa greinst árlega hér á landi á undanförnum árum en þau hafa til þessa öll verið af erlendum uppruna

Mítill Skógarmítill á handlegg. Mítlarnir geta borið með sér bakteríur sem valda Lyme-sjúkdómi og veiru sem veldur mítilborinni heilabólgu.
— Ljósmynd/Colourbox
Baksvið
Guðm. Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Nýjar rannsóknir á skógarmítlum sem fundist hafa hér á landi leiða í ljós að hluti þeirra hefur borið með sér bakteríu sem getur valdið svonefndum Lyme-sjúkdómi. Nokkur tilfelli af þessum sjúkdómi hafa greinst árlega hér á landi á undanförnum árum en þau hafa til þessa öll verið af erlendum uppruna.
„Við töldum víst að það væru sýklar í þeim mítlum sem hingað koma því þeir koma frá svæðum þar sem slíkir sýklar eru þekktir. Það er ágætt að fá það staðfest og að fólk sé meðvitað um þetta,“ segir Matthías S. Alfreðsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun.
Hér á landi hafa fundist 12 tegundir af svonefndum stórmítlum sem skógarmítillinn tilheyrir. Þrjár þeirra
...