
Glímubrögð Reynir aðstoðar nemanda við klofbragðsvörn með leiðbeiningum frá Einari glímukóngi Íslands, eða „kónginum“, eins og þeir segja vestra.
Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
„Þetta var ótrúlega skemmtilegt,“ segir Reynir A. Óskarson, áhugamaður um líf og bardagaaðgerðir víkinga, um ferð íslenskra glímukappa í æfingabúðir í borginni Martinsburg í Vestur-Virginíuríki í Bandaríkjunum, en íslenska glímuhópnum var boðið af samtökunum Odin's Warrior Tribe.
„Þeir vildu bjóða okkur út til að kenna þeim glímu, því íslenska glíman er eina íþróttin sem lifði af víkingaöld.“ Í íslenska hópnum voru, auk Reynis, núverandi glímukóngur Íslands, Einar Eyþórsson, fyrrverandi glímudrottning og framkvæmdastjóri Glímusambands Íslands, Jana Lind Ellertsdóttir, og varaformaður Glímusambands Íslands og fyrrverandi heimsmeistari í hryggspennu, Guðmundur Stefán Gunnarsson.