Fjögur leikskólabörn smituð
Fjögur leikskólabörn og 33 grunnskólanemendur hafa greinst með kórónuveiru í Reykjavík. Þá hafa einnig 28 starfsmenn leikskóla og 18 starfsmenn grunnskóla smitast af veirunni, en smit hafa nú komið upp í 11 leikskólum og 20 grunnskólum Reykjavíkurborgar. Kemur þetta fram í svari skóla- og frístundasviðs við fyrirspurn Morgunblaðsins, en tölurnar miðast við 2. apríl.
Í Reykjavík eru nú 355 grunnskólanemendur í sóttkví og 3.351 í leyfi frá skóla að ósk foreldra. Fjöldi barna á leikskólaaldri í sóttkví er 166 og eru 1.448 leikskólabörn í leyfi að ósk foreldra. Alls er því 5.320 leik- og grunnskólabörnum í Reykjavík haldið heima þessa dagana.
Skúli Helgason, borgarfulltrúi Samfylkingar og formaður skóla- og frístundaráðs, segir ljóst að ákveðinn hópur foreldra vilji hafa vaðið fyrir neðan sig og vísar hann þar til mikils fjölda barna í leyfi frá skóla.
„Ástæðurnar geta verið mýmargar; persónulegar eða tengdar heilsufari barnanna eða einhverra á heimilinu....