„Er nú hægt en örugglega að þurrkast út“

Sjóliðar af þýska orrustuskipinu Scharnhorst ganga frá borði breska flutningaskipsins …
Sjóliðar af þýska orrustuskipinu Scharnhorst ganga frá borði breska flutningaskipsins SS St Ninian. Myndin er tekin í Skotlandi 2. janúar 1944. Ljósmynd/Konunglegi breski sjóherinn

„Þýski sjóherinn, sem þessi sjálfskipaði herkænskusnillingur, foringinn, byggði svo stoltur upp er nú hægt en örugglega að þurrkast út. Nú hefur Scharnhorst, 26 þúsund tonna orrustubeitiskip, farið niður á hafsbotninn — sem er nú ekki óvenjuleg afleiðing átaka við konunglega breska sjóherinn.“ Á þessum orðum hófst fréttamynd Movietone News sem flutti almenningi fregnir af grimmilegum örlögum þessa vígdreka í jólahátíðinni árið 1943. Af um 1.700 manna áhöfn Scharnhorst komust lífs af þrjátíu og sex sjómenn.

Scharnhorst og systurskipið Gneisenau voru af Scharnhorst-gerð orrustuskipa sem smíðuð voru fyrir sjóher Þriðja ríkisins á árunum fyrir og um stríð. Scharnhorst er nefnt eftir prússneska hershöfðingjanum Gerhard von Scharnhorst (d. 28. júní 1813) sem meðal annars var yfir herskólanum í Hannover og fyrsti yfirmaður prússneska herforingjaráðsins. Vert er að geta þess að Þjóðverjar flokkuðu Scharnhorst-gerð skipa sem orrustuskip en Bretar litu fremur á...