Ekki geta allir verið Antónínus Píus

Biden ávarpar Bandaríkjaþing. Það virðist leitun að þeirri vestrænu þjóð …
Biden ávarpar Bandaríkjaþing. Það virðist leitun að þeirri vestrænu þjóð sem býr að mjög hæfri stjórnsýslu. AFP

Alltaf kemur það mér á óvart hvað fólk virðist reiðubúið að færa embættismönnum og kjörnum fulltrúum meiri völd. Er eins og það sé hluti af mannlegu eðli að treysta um of á hæfni og vilja leiðtoganna til að leysa öll heimsins vandamál og létta okkur lífið. Samt ætti reynslan að hafa kennt okkur það, trekk í trekk, að umgangast pólitíkusa og starfsmenn hins opinbera af ýtrustu tortryggni. Þarf ekki annað en að lesa sögubækurnar til að það blasi við að hæfir leiðtogar eru mun sjaldgæfari en þeir óhæfu; að stjórnvöld eru líklegri til að gera hlutina rangt en að gera þá rétt.

Neró og Caracalla eru víða

Saga Rómarveldis gefur okkur ágætis hugmynd um hver hlutföllin eru á milli hæfra og vanhæfra hjá hinu opinbera. Frá því Ágústus komst til valda árið 27 f.Kr. og þar til Rómúlus Ágústus neyddist til að láta af völdum árið 476 þurftu Rómverjar að lúta stjórn um það bil 70 keisara og áttu þeir það flestir sameiginlegt að vera afleitir leiðtogar sem létu...