Ábyrgðarhluti að búa til fyrir börn

Þórarinn og Sigrún með nýju bókina sína fyrir framan sig, …
Þórarinn og Sigrún með nýju bókina sína fyrir framan sig, Rím og roms. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

„Barnabækur mega alls ekki vera leiðinlegar fyrir fullorðna, það er alveg hræðilegt, það þekkja allir foreldrar,“ segja þau systkini Þórarinn og Sigrún Eldjárn, en þau sendu nýlega frá sér barnabókina Rím og roms, ljóðabók þar sem Þórarinn sér um textagerð en Sigrún er höfundur mynda.

„Þetta er níunda ljóðabókin sem við gerum saman með þeim hætti að ég yrki ljóðin en Sigrún myndskreytir. Þar fyrir utan eru einar fjórar bækur þar sem þessu er öfugt farið, þá hefur Sigrún spunnið upp myndir en ég ljóðskreytt,“ segir Þórarinn og Sigrún bætir við að hún passi ekki síður en textasmiðurinn að hafa myndirnar hressilegar og líflegar.

„Það er alveg nauðsynlegt að hlæja. Þetta er vorbók og við vildum hafa hana létta og leikandi. Þegar Þórarinn er kominn með nokkur ljóð og við búin að ákveða að nú sé komið að því að gera nýja bók, þá sendir hann mér ljóðin og ég byrja á því að skoða þau. Mjög fljótlega fæ ég einhverja mynd í hausinn sem...