Þegar Bram Stoker var bálskotinn í Walt Whitman

Walt Whitman var ekta ólgandi karlmaður í nýja heiminum og …
Walt Whitman var ekta ólgandi karlmaður í nýja heiminum og skrifaði innileg ljóð um ástir á milli karla.

Ef þeir væru uppi í dag hefði Bram Stoker eflaust látið nægja að senda Walt Whitman skeyti í gegnum stefnumótaforritið Grindr, en árið var 1876 og ekki annað í boði en að senda langt og innilegt handskrifað bréf í pósti og gæta þess að það sem þyrfti þar að koma fram væri sagt undir rós. Það kom ekki til greina að segja hlutina berum orðum enda samkynhneigð bæði ólögleg og fyrirlitin beggja vegna Atlantshafsins.

Varla þarf að kynna Bram Stoker og Walt Whitman fyrir lesendum. Sá fyrrnefndi skrifaði söguna um vampíruna Drakúla og ruddi með því leiðina fyrir nýja tegund bókmennta. Sá síðarnefndi er í hópi fremstu ljóðskálda Bandaríkjanna og tókst í senn að hrista rækilega upp í bandarískri bókmenntahefð og hneyksla samtímamenn sína með verkum á borð við ljóðasafnið Leaves of Grass.

Það er á allra vitorði að Whitman var samkynhneigður, enda leyfði hann kynhneigð sinni að skína í gegn í kveðskapnum. Færri vita að Stoker var líka samkynhneigður og kemur...