Höfum náð markmiðunum

Sigurður Pétursson hefur unnið að uppbyggingu Arctic Fish og telur …
Sigurður Pétursson hefur unnið að uppbyggingu Arctic Fish og telur tímabært að láta nú af störfum. Hann vill snúa sér að frumkvöðlaverkefnum. Morgunblaðið/Eggert

„Allir þurfa að þekkja sinn vitjunartíma, sérstaklega frumkvöðlar. Ég ætlaði aldrei að starfa svona lengi við fyrirtækið. Við höfum náð þeim markmiðum sem við settum okkur fyrir tíu árum, þegar við stofnuðum Arctic Fish og rétti tíminn til að hætta er á þessum tímamótum,“ segir Sigurður Pétursson, stofnandi og einn af stjórnendum fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish á Vestfjörðum. Hann lætur af störfum í dag, á tíu ára afmælisdegi fyrirtækisins.

Sigurður er á eigin vegum að koma upp fræðslumiðstöð fiskeldis sem hann kallar Lax-Inn, við Mýrargötu í Reykjavík. Hann ætlar að einbeita sér að því verkefni á næstunni og stefnir að því að opna í haust.

Vildi byggja upp á Vestfjörðum

„Ég er ættaður að vestan, ólst upp á Suðureyri. Ég fór vestur fyrir nokkuð mörgum árum þegar ég bjó í Frakklandi og fékk þá löngun til að byggja upp atvinnustarfsemi á svæðinu,“ segir Sigurður þegar hann er spurður um tildrög þess að hann fór...