Konur skila meiri tekjum

Kvikmyndin Bridesmaids stenst Bechdel-prófið með prýði og er ein af …
Kvikmyndin Bridesmaids stenst Bechdel-prófið með prýði og er ein af fáum vinsælum myndum sem standast ekki öfugt Bechdelpróf, þ.e. engir karlar tala saman í myndinni um annað en konur. Ljósmynd/Universal Studios

Ef gáfuðum lífverum frá annarri plánetu yrði leyft að horfa á nokkrar vinsælar kvikmyndir frá jörðu myndu þær líklega halda að konur séu mun færri en karlar, að minnsta kosti ómerkilegri.

Staðreyndin er einfaldlega sú að konur eru talsvert minna sýnilegar í kvikmyndum en karlar og séu þær sýnilegar þá er tilgangur þeirra oft einungis að styðja við sögu karlmannsins sem er í aðalhlutverki.

Rannsókn sem gerð var árið 2014 sýndi að 31% titlaðra hlutverka í Bandaríkjunum fóru til kvenna á árunum 2010-13 og 23% kvikmynda höfðu kvenkyns söguhetju í aðal- eða aukahlutverki. Þá leikstýrðu konur aðeins 7% kvikmynda á þessum árum.

Önnur rannsókn sýndi að meðal vinsælla kvikmynda í Bandaríkjunum frá árinu 1929 til 2015 talaði kona mest í aðeins 22% þeirra. Þá var aðeins ein mynd af 26 sem vann til Óskarsverðlauna fyrir bestu mynd á árunum 1991-2016 þar sem konur töluðu meira en karlar.

Sandra Bullock var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í …
Sandra Bullock var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Gravity sem þó stenst ekki Bechdel-prófið enda fámennur leikarahópur þar á bæ. Ljósmynd/Warner Bros. Pictures