Karíus og Baktus að bíða eftir Godot

Úr leiksýningunni Kjarval, Haraldur og Þuríður Blær í hlutverkum Gilla …
Úr leiksýningunni Kjarval, Haraldur og Þuríður Blær í hlutverkum Gilla og Gogg. Ljósmynd/Grímur Bjarnason

Listmálarinn Jóhannes Sveinsson Kjarval er umfjöllunarefni nýrrar fjölskyldusýningar sem frumsýnd verður á Litla sviði Borgarleikhússins á morgun, laugardag, kl. 14 og nefnist einfaldlega Kjarval. Er sýningin að hluta til byggð á verðlaunabók Margrétar Tryggvadóttur um listamanninn.

Leikstjóri og höfundur leikgerðar er Stefán Hallur Stefánsson og leikarar Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson. Úlfur Eldjárn samdi tónlistina og Guðný Hrund Sigurðardóttir hannaði leikmynd og búninga.

„Þetta er sýning ætluð börnum á hinum klassíska aldri frá 8 til 88 ára. Ég myndi segja að þetta væri tilvalin sýning bæði fyrir yngstu eða yngri kynslóðina til að uppgötva og komast í fyrstu kynni við listamanninn og fyrir eldri kynslóðir til að endurvekja gömul og góð,“ segir Stefán Hallur.

Risi í íslenskum menningararfi

–Hvernig nálgist þið Kjarval? Nú er þetta stórt viðfangsefni, mikill maður í listasögunni ...

...