Fyrrverandi andspyrnuhreyfingarkona 100 ára

Minni bjó heima hjá sér þar til hún var rúmlega …
Minni bjó heima hjá sér þar til hún var rúmlega 99 ára, en býr nú á Eir. Morgunblaðið/Unnur Karen

„Ég trúi þessu ekki sjálf, að ég sé orðin hundrað ára,“ segir Minni Kalsæg Gunnarsson glaðlega, en hún fagnar nú samt aldarafmæli í dag. „Á langri ævi eru erfiðu tímarnir í seinni heimsstyrjöldinni mér eftirminnilegastir, og að hafa misst pabba minn þegar ég var lítil stúlka,“ segir Minni og tekur fram að hún hafi átt góða ævi á Íslandi og að allir hafi tekið henni vel þegar hún flutti til Íslands árið 1951, þá aðeins þrítug ung kona.

Ekki minni menn en Þórbergur Þórðarson og Gunnar Dal sáu um að kenna henni íslensku.

Minni á stórmerkilega sögu, hún fæddist inn í efnafjölskyldu í bænum Eidsvoll í Noregi árið 1921. Eftir að faðir hennar lést í bílslysi þegar Minni var átta ára tóku afi hennar og amma fljótlega við uppeldishlutverkinu, en móðir hennar flutti til Óslóar eftir að hún giftist aftur. Afi Minniar, Carl Martin Kalsæg, var virtur kaupsýslumaður og lést þegar Minni var 14 ára.

Þegar seinni heimsstyrjöldin skall á gekk Minni til...