„Ómetanleg menningarverðmæti“

„Ósk mín er að óperustarfsemin fái þann stað í okkar …
„Ósk mín er að óperustarfsemin fái þann stað í okkar menningarlífi sem hún verðskuldar og það öryggi sem hún er í raun búin að vinna sér inn réttinn til þess að hafa,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri. Ljósmynd/Valli

„Við vorum svo blessunarlega vel sett að við þurftum ekki að aflýsa neinum af okkar stóru verkefnum heldur færast þau milli ára. Eins og allir vita þá er meðgöngutími stórra óperusýninga mjög langur og því hefði orðið töluvert tjón ef þurft hefði að aflýsa verkefnum sem komin voru vel á leið. Þessi langi meðgöngutími kallar á mikilvægi þess að geta gert langtímaplön,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri Íslensku óperunnar (ÍÓ).

Stærstu verkefni komandi starfsárs hjá ÍÓ eru fjórar sýningar á óperunni La traviata, sem hætti fyrir fullu húsi á sínum tíma, í Eldborg og Hofi í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar í nóvember og Valkyrjan í Eldborg í febrúar, sem sett er upp í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð í Reykjavík. Sem fyrr syngur Herdís Anna Jónasdóttir hlutverk Violettu, en hún hlaut Grímuverðlaunin 2019 sem söngvari ársins fyrir túlkun sína á hlutverkinu.

Valkyrjan átti fyrst að fara á...