Ríkið hætti að framleiða pappírsskjöl

Morgunblaðið/Ómar

Að mati Þjóðskjalasafns liggur vandinn einkum í því að ríkið hefur ekki innleitt rafræna skjalavörslu af nægilegum krafti. Það hefur leitt til þess að stofnanir eru að prenta út rafræn gögn á pappír til varðveislu þannig að frá 2012 hefur pappírsmagnið aukist um 112% hjá ríkinu.“

Þetta segir Njörður Sigurðsson, sviðsstjóri skjala- og upplýsingasviðs Þjóðskjalasafns, þegar hann er inntur eftir skýringum á þeirri gífurlegu fjölgun pappírsskjala hjá opinberum stofnunum sem í ljós kom við við eftirlitskönnun í sumar sem leið. Skýrsla um málið var birt í síðustu viku. „Ef rafræn skjalavarsla er innleidd hjá stofnunum, embættum og fyrirtækjum ríkisins minnkar þörfin á miklu húsnæði undir pappírsskjöl, bæði hjá stofnunum og Þjóðskjalasafni,“ segir hann.

Njörður segir að niðurstaðan hafi þó ekki komið starfsfólki Þjóðskjalasafnsins á óvart. „Þessi mynd hefur birst í niðurstöðum á eftirlitskönnunum safnsins undanfarin ár. Við höfum bent stjórnvöldum á...