Hér brýst smekkspilling og vítisstefna til valda

Jón Leifs á yngri árum. Hann kom alkominn heim til …
Jón Leifs á yngri árum. Hann kom alkominn heim til Íslands 1945 og lést 1968.

Sumarið 1921 birtist í Morgunblaðinu viðtal við 22 ára gamlan tónlistarmann, Jón Leifs, sem þá var nýsnúinn heim úr tónlistarnámi í Leipzig, eða Hlaupsigum, eins og það kallast upp á íslensku. Þar lýsti hann vilja sínum til að koma á fót í Reykjavík strokorkestri, eða strengjasveit eins og það myndi líklega heita í dag. Tveimur mánuðum síðar ritaði Jón bréf í Morgunblaðið, þar sem hann sagði árangur af strokhljóðfæraæfingum næstu sex vikur á undan ekki hafa verið eins og að var stefnt. Vildi hann gera grein fyrir ástæðum þess.

Jón kvaðst þekkja tólf menn í Reykjavík sem gætu leikið svo á strokhljóðfæri, að þeir væru nothæfir í strokorkestri, sem tæki létt lög til meðferðar og yrði þaulæft með nákvæmni. Síðan nafngreindi hann þessa menn.

„Af mönnum þessum hétu mér upphaflega allir liðsinni, nema tveir. Annar þeirra var Bernburg. Kvaðst hann álíta það ógerning, sakir kunnáttuleysis að koma hér upp slíkum flokki og kvaðst fyrir löngu hafa gert slíkt ef mögulegt...