Var Moskva fórnarlamb árásar eða vanrækslu?

Rússneska eldflaugabeitiskipið Moskva á siglingu.
Rússneska eldflaugabeitiskipið Moskva á siglingu.

Eldflaugabeitiskipið Moskva var yfirgefið í flýti eftir að mikill eldur kom upp í vopnageymslum skipsins seint í fyrradag. Skömmu áður sendi loftskeytamaður neyðarkall og óskaði eftir tafarlausri aðstoð. Í fyrstu var talið að skipið myndi sökkva á skömmum tíma en nú hefur Hvíta húsið gefið það út að svo virðist sem reynt hafi verið að draga það til hafnar í Sevastópol á Krímskaga. Var þá eldur að öllum líkindum enn laus um borð. Skipið er nú sagt sokkið. Orsök eru óljós – Úkraínumenn segjast hafa hæft Moskvu með tveimur öflugum skipaflaugum en Rússar gáfu út yfirlýsingu sem þykir benda til einhvers konar óhapps um borð eða vanrækslu. Hvort heldur sem er, þá hefur rússneski sjóherinn með þessu orðið fyrir alvarlegum álitshnekki.

Moskva er af Slava-gerð sovéskra eldflaugabeitiskipa, var fyrsta skip sinnar gerðar og nefndist þá Slava sem íslenska mætti sem dýrð. Skipið fékk síðar nafnið Moskva eftir miklar endurbætur árið 2000. Stríðsjálkurinn var smíðaður...