Bandaríkin stórauka hernaðaraðstoð sína
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur ákveðið að hefja aftur þjálfun úkraínskra hermanna. Hefur þjálfunin legið niðri síðastliðnar sjö vikur, eða allt frá því að innrásarlið Pútíns Rússlandsforseta hóf sókn sína inn í landið. Auk þessa munu Bandaríkin styðja við bakið á Úkraínu með vopnasendingum og er aðstoðin í heildina metin á um 800 milljón dali. Meðal þeirra vopna sem Úkraínumönnum verða gefin er hin gríðaröfluga Howitzer-stórskotaliðsfallbyssa og mun þetta vera í fyrsta skipti sem Bandaríkin senda annarri þjóð stórskotaliðsfallbyssu sem hernaðaraðstoð. Spennan á milli Rússlands og Vesturlanda mun vafalaust ekki minnka við þessi tíðindi.
Bandaríkin hófu að þjálfa úkraínska herinn skömmu eftir landtöku Rússa á Krímskaga. Hefur Úkraínuher því búið sig undir hernaðarátök við Rússland síðan þá og verið þjálfaður á pari við vestræna heri. Þessi þjálfun hætti við innrás Rússlands en nú hafa Bandaríkin ákveðið að taka hana upp aftur og gefa um leið enn frekar...