Staða Rússlands mun aðeins versna

Víða í Rússlandi má versla fatnað og annan varning með …
Víða í Rússlandi má versla fatnað og annan varning með áróðursmerkingum. Bókstafurinn Z er orðinn að tákni fyrir stuðningsmenn innrásarstríðs Moskvuvaldsins. AFP/ALEXANDER NEMENOV

Úkraínski herinn samanstendur af „atvinnumönnum“ sem staðráðnir eru í að „berjast til síðasta manns“. Staða rússneska hersins mun „einungis versna,“ enda er „allur heimurinn á móti okkur“. Þetta sagði Mikhaíl Khodarenok, fyrrverandi ofursti í rússneska hernum og álitsgjafi þar í landi um hernaðarleg málefni, í beinni útsendingu í rússneska ríkissjónvarpinu. Síðar birtist þessi sami maður í fjölmiðlum á ný en þá bar við allt annan tón. Voru Rússar þá afar nálægt sigri í Úkraínustríðinu.

Það að fyrrverandi yfirmaður hersins hafi skotið stríðsbrölt Moskvuvaldsins niður í beinni sjónvarpsútsendingu verður að teljast einstakt í Rússlandi. Fréttamiðlar þar eru ekki þekktir fyrir gagnrýni sína í garð stjórnvalda. Þá má einnig geta þess sérstaklega að Mikhaíl þótti fyrir þetta afar virtur álitsgjafi með óflekkaðan feril innan hersins. Orð hans vega því þungt í eyrum þeirra tug milljóna Rússa sem fá upplýsingar sínar frá...