Kaflaskil frekar en sögulok

Það hafa skipst á skin og skúrir í lífi Sheryl …
Það hafa skipst á skin og skúrir í lífi Sheryl Sandberg og mikið mætt á henni undanfarin ár. Hún er í miklu uppáhaldi hjá framakonum og margir vona að hún skelli sér í pólitík. Fram undan er verðskulduð hvíld og sumarbrúðkaup. AFP/JIM WATSON

Þeim sem þekkja mjög vel til í rekstri Meta, móðurfélags Facebook, var sennilega ekki brugðið við tíðindin þegar Sheryl Sandberg tilkynnti í byrjun þessa mánaðar að hún hygðist láta af störfum sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Í fjórtán ár hefur Sandberg stýrt uppbyggingu samfélagsmiðilsins og tekist að gera auglýsingakerfi Facebook að peningaprentvél, en hún hefur líka þurft að þola sinn skerf af óvæginni gagnrýni og margoft verið andlit fyrirtækisins út á við á erfiðum tímum. Sá kvittur hafði verið á kreiki í Kísildal að Sandberg væri orðin þreytt á baslinu og að togstreita væri tekin að myndast í sambandi hennar og Marks Zuckerbergs, stofnanda og forstjóra Facebook.

Rannsóknarblaðamenn Wall Street Journal komu snemma auga á vísbendingar um að vindáttin væri að breytast á vinnustað Sandberg en þau lögðust yfir gögn úr daglegum rekstri félagsins og tóku eftir því að sífellt færri verkefni lentu á borði Sandberg. Ítök hennar fóru jafnt og þétt minnkandi og var...