Það eru nokkrir svanir eftir

Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir eru samrýnd hjón. Ásta …
Valgeir Guðjónsson og Ásta Kristrún Ragnarsdóttir eru samrýnd hjón. Ásta stóð þétt við bakið á manni sínum í gegnum erfið veikindi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Tónlistarmaðurinn og Stuðmaðurinn góðkunni, Valgeir Guðjónsson, og kona hans Ásta Kristrún Ragnarsdóttir, námsráðgjafi og rithöfundur, starfrækja menningarhús fjölskyldunnar, Bakkastofu, á Eyrarbakka. Þar bjóða þau upp á dagskrá sem er blanda af tónlist, samveru og sögustundum. Tónlistin og textar eru öll eftir Valgeir en Ásta er sérfróð um menningararfinn á 19. öld. Þegar gestir eru erlendir og enskumælandi flytur Valgeir aðallega tónlist úr Saga Musica bálki sínum sem nær lengra aftur, eða til landnáms Íslands með sterka tilvísun í Íslendingasögur og goðafræði. Valgeir segist ungur hafa heillast af uppruna þjóðar og spændi í sig Íslendingasögurnar sem barn. Áhuginn minnkaði ekki með árunum og árið 1991 sigldi hann með víkingaskipinu Gaiu frá Noregi til Orkneyja sem var mikið ævintýri.

Blaðamaður hitti fyrir hjónin sem eru í óða önn að æfa fyrir stórtónleika sína sem haldnir verða á sjálfan þjóðhátíðardaginn í Skálholti. Þau gáfu sér þó tíma til að...