Hvers á Depardieu að gjalda?

Súpueldhús í úthverfi Líma. Oxfam heldur í þá ranghugmynd að …
Súpueldhús í úthverfi Líma. Oxfam heldur í þá ranghugmynd að fátækt í heiminum sé þeim ríku að kenna. AFP

Við Youssef erum farnir að skoða það af fullri alvöru að kveðja Frakkland. Það er margt yndislegt við lífið í París en smám saman hefur runnið upp fyrir okkur að mínusarnir eru líklega fleiri en plúsarnir.

Sjálfum þykir mér verst af öllu hvað frönsk stjörnvöld leggja háa skatta á venjulegt launafólk en til að gera illt verra er skattkerfið svo flókið að það er borin von fyrir aðra en hámenntaða endurskoðendur að skilja hvað má og hvað má ekki. Samskiptin við franska stjórnsýslu eru heldur ekki til þess fallin að auka greiðsluviljann, og oft að ég spyr sjálfan mig að því hvernig í ósköpunum tekst að halda frönsku samfélagi gangandi, í ljósi þess hvernig yfirvöld ná að flækja sjálfsögðustu og einföldustu hluti.

Erum við hjónin með augastað á draumalandinu Sviss. Ég kíkti á tölurnar og fékk það út að þegar tekið er inn í dæmið að skattarnir í Sviss eru hóflegir og að Youssef gæti átt þar von á töluvert hærri launum, þá ætti að fara mun betur um okkur hjónin við Lac...