Gríðarlega virtur og vinsæll

Listamaðurinn. Sjálfsmynd Bertels Thorvaldsens stóð lengi á Austurvelli en þar …
Listamaðurinn. Sjálfsmynd Bertels Thorvaldsens stóð lengi á Austurvelli en þar styður hann sig við verk sitt Von. Ljósmyndin er frá byrjun 20. aldar. Ljósmyndasafn Reykjavíkur/Magnús Ólafsson

Þess er minnst í dag með margvíslegum hætti, bæði hér á landi og í Danmörku, að 250 ár eru liðin frá fæðingu myndhöggvarans merka Bertels Thorvaldsens (1770-1844). Síðdegis verður meðal annars boðið í göngu milli verka listamannsins sem má sjá í miðborg Reykjavíkur og þá efnir Listasafn Íslands, í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið, til hátíðardagskrár og málþings í tilefni af 250 ára afmælinu.

Fjölbreytileg erindi á málþingi

Málþingið verður haldið í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg og hefst kl. 10. Viðburðinum verður streymt á Facebook-síðu safnsins.

Þingið hefst með ávarpi safnstjóra Listasafns Íslands, Hörpu Þórsdóttur. Þá taka til máls Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Eva Egesborg Hansen, sendiherra Danmerkur á Íslandi. Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Svanur Vilbergsson gítarleikari flytja nokkur lög sem veita innsýn í líf og samtíma Bertels og þá flytur Annette Johansen,...