Var alin upp í ljóðum

„Ég les alltaf ljóð upphátt heima hjá mér og finn …
„Ég les alltaf ljóð upphátt heima hjá mér og finn bókstaflega fyrir líkamlegum viðbrögðum,“ segir Bergljót Soffía. Morgunblaðið/Árni Sæberg

„Hefði ég skrifað þessa bók fyrir tuttugu árum, þá væri hún allt öðruvísi, því það hefur svo margt breyst síðustu áratugi í bókmenntafræðinni,“ segir Bergljót Soffía Kristjánsdóttir sem tilnefnd var til viðurkenningar Hagþenkis fyrir bók sína Fræðaskjóða: Bókmenntafræði fyrir forvitna.

„Að mínu mati hafa helstu breytingar í bókmenntafræði undanfarið tengst uppgötvunum í líffræði og taugafræði. Við höfum lært meira um mannsheilann á síðustu þremur áratugum heldur en allar aldirnar á undan – þó að við vitum lítið um hann enn! Fyrir vikið getum við farið að ræða hluti í bókmenntum á annan hátt en fyrr, til dæmis tilfinningar og geðshræringar, ímyndunarafl, lestur og sköpunarkraft. Auk þess hefur bókmenntafræðin á síðustu áratugum lagt áherslu á lesandann, á upplifunina af lestrinum. Bókmenntir eru einskis virði nema af því að fólk upplifir þær á ólíkan hátt. Hver og einn lesandi getur sótt til bókmennta og bætt við þær því sem sprettur af hans...