Iðrun, ótti og heilmikill greiðsluvilji

Móðir heldur á fárveiku og vannærðu barni sínu á spítala …
Móðir heldur á fárveiku og vannærðu barni sínu á spítala í Sómalíu. Allt of miklu púðri, og fjármunum, er varið í loftslagsmálin á meðan önnur og brýnni vandamál sitja á hakanum. Það er löngu tímabært að vitleysunni linni. AFP

Ef ég ætti að velja minn uppáhaldspáfa þá væri það líklega Leó X., þó ekki væri nema vegna þess hvað hann var óforskammaður.

Leó var næstelsti sonur sjálfs Lorenzo de' Medici og hentaði það hagsmunum Medici-ættarinnar prýðilega að gera Leó að guðsmanni. Lorenzo var þó greinilega ekki alveg viss um að Leó hefði rétta lundarfarið til að vera prestur – hvað þá páfi – og er til sendibréf þar sem hann brýnir fyrir syni sínum að láta ekki syndir og lífsins lystisemdir freista sín. Eins og með svo mörg önnur ungmenni virðast ráðleggingar föðurins hafa farið inn um annað eyrað og út um hitt.

Frásagnirnar af valdatíð Leós á páfastóli eru svo krassandi að óvist er hvort að megi taka mark á öllu því sem samtímamenn Leós höfðu um hann að segja. Hann var þó alveg örugglega mikill lífsnautnaseggur og iðinn við að gamna sér með laglegu ungu mönnunum sem mektarfjölskyldur Ítalíu sendu til Rómar til að þjóna leiðtoga kirkjunnar. Þegar hann tók við aðalstarfinu hélt Leó...