Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Dægurmál
18. apríl 2022
Berglind Guðmundsdóttir ræðir hér við Kristjönu Marín Ásbjörnsdóttur og Rakel Jónsdóttur um einkenni, greiningar og meðferðir skjaldkirtilssjúkdóma þar sem þær deila sinni persónulegu reynslu af þessu þrennu.
Talið er að einn af hverjum tíu einstaklingum greinist með skjaldkirtilssjúkdóma einhvern tímann yfir ævina, konur og karlar á öllum aldri. Fyrir flesta er sjúkdómurinn krónískur og krefst ævilangrar meðferðar. Einkenni skjaldkirtilssjúkdóma eru mismunandi og fara eftir því hvort um er að ræða ofvirkan skjaldkirtil eða vanvirkan, hvort um sjálfsofnæmissjúkdóm er að ræða og hversu lengi sjúkdómurinn hefur verið til staðar. Engar tvær manneskjur eru eins og einkenni geta því verið mismunandi á milli einstaklinga.
Kristjana Marín Ásbjörnsdóttir er lífeindafræðingur og formaður Skjaldar - félag um skjaldkirtilssjúkdóma. Hún er með sjálfsofnæmissjúkdóm sem nefnist Hashimoto en sjúkdómurinn veldur vanvirkni í skjaldkirtli. Kristjana var í mörg ár með sjúkdóminn áður en hún fékk greininguna.
Rakel Jónsdóttir, leiðsögumaður, er einn af stofnendum Skjaldar, félags um skjaldkirtilssjúkdóma, og fyrrverandi varaformaður og formaður félagsins. Rakel var árum saman með ógreindan vanvirkan skjaldkirtil og tók það tók hana mörg ár að fá rétta greiningu.
Félagið er með lokaðan hóp á Facebook fyrir félagsmenn Skjaldar.
Heimasíða: www.skjaldkirtill.is
Facebook síða: Skjöldur- félag um skjaldkirtilssjúkdóma
Instagram síða: Skjoldur_felag
,,Spjallhópur fólks með skjaldkirtilssjúkdóma" á Facebook.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska