Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Þjóðmálin
10. mars 2025
Formaður Landssambands lögreglumanna telur að fjölga þurfi lögreglumönnum um 200 og það strax til að bregðast við þeim veruleika sem blasir við á Íslandi. Hann vonast til þess að loforð ríkisstjórnarinnar um að fjölga lögreglumönnum um fimmtíu gangi eftir en segir ljóst að kalla þurfi til mannskap sem hefur hætt ef það á að ganga eftir.
Fjölnir Sæmundsson á að baki aldarfjórðung í ýmsum deildum lögreglunnar og segir hann virðingarleysi gagnvart lögreglu og hennar aðgerðum hafa aukist. Hann nefnir tvo atburði sem hafi breytt miklu. Hrunið á Íslandi færði viðmið til sérstaklega þegar horft er til mótmæla og framgöngu í þeim. Löggæsla á Norðurlöndum breyttist við Breivik fjöldamorðin í Noregi.
Í opinskáu viðtali í Dagmálum í dag fer Fjölnir yfir þær breyttu áskoranir sem lögregla glímir við. Hótanir í garð lögreglumanna og fjölskyldna þeirra hafa aukist og þekkt eru dæmi um að fólk komi hingað til lands frá Svíþjóð gagngert til að fremja skemmdarverk á eigum lögreglufólks og standa við hótanir.
Norska löreglan vill vopnvæðast eftir að norskur lögreglumaður var skotinn í reglubundnu eftirliti. Fjölnir segir íslenska lögreglumenn vilja í lengstu lög halda í sakleysið sem einkennt hefur íslenskt samfélag.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.790 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska