Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Umbúðalaust
23. janúar 2023
Bótagreiðslur til þolenda ofbeldis hafa aukist verulega síðari ár. Halldór Þormar Halldórsson, starfsmaður Bótanefndar segir að síðustu tvö ár hafi mál á vegum nefndarinnar farið yfir fimm hundruð, hvort ár. Það er mikil aukning frá fyrri árum. Halldór Þormar er gestur Dagmála í dag og ræðir þar fyrirkomulagið á bótagreiðslum og þessa birtingarmynd aukins ofbeldis í samfélaginu.
Íslenska ríkið greiðir út miska- og skaðabætur vegna ofbeldismála eftir að dómstólar hafa afgreitt mál. Hann telur tímabært að gera breytingar á þeim lögum sem nefndin vinnur eftir og er með ákveðnar tillögur í þeim efnum sem hann telur fela í sér réttarbætur. Að sama skapi telur hann rétt að huga að breytingum á hámarks- og lágmarks fjárhæðum sem nefndin er bundin af.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska