Hafþór Júlíus nú og áður

Hafþór Júlíus um tvítugt og um sex árum síðar.
Hafþór Júlíus um tvítugt og um sex árum síðar. Af 9GAG

Tvær myndir af Hafþóri Júlíusi Björnssyni hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla síðustu klukkustundirnar eftir að þeim var deilt á síðunni 9GAG. Myndunum hefur verið deilt hátt í 10 þúsund sinnum og mörg þúsund manns hafa skilið eftir athugasemd við myndirnar. 

Á annarri myndinni má sjá Hafþór Júlíus um tvítugt, en þá spilaði hann körfubolta með KR. Á seinni myndinni er hann um sex árum eldri og nokkuð vígalegri, vægt til orða tekið. 

Þeir sem hafa ritað athugasemdir við myndirnar velta meðal annars fyrir sér hvort sterar hafi átt þátt í þessari stækkun Hafþórs Júlíusar. 

Hafþór Júlíus hefur vakið athygli fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones en þar leikur hann Fjallið (e. Mountain). 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson