Viðurkenning IBBY

Viðurkenning IBBY

Kaupa Í körfu

Á SUMARGLEÐI Barna og bóka, Íslandsdeildar IBBY, sem haldin var í Norræna húsinu á sumardaginn fyrsta, voru veittar árlegar viðurkenningar félagsins fyrir menningarstarf í þágu barna og unglinga. Einnig voru veitt verðlaun í Ljóðasamkeppni almenningsbókasafna sem Þöll, samstarfshópur um barna- og unglingastarf á bókasöfnum, stendur að í samvinnu við Mál og menningu. Mikil þátttaka var í samkeppninni og hefur Mál og menning nú gefið út úrval ljóðanna á kilju sem ber nafnið Ljóð unga fólksins. Þátttakendur voru á aldrinum 9­16 ára og var þeim skipt í tvo aldurshópa. Mál og menning gaf vinningshöfum bókaverðlaun og Parkerumboðið á Íslandi áritaði sjálfblekunga. Verðlaunahafarnir Kjartan Þórisson , Hjalti Heiðar Jónsson , Melkorka Sigríður Magnúsdóttir , Svava Hlín Hilmarsdóttir , Rganhildur Bjarnadóttir , Bergþóra Snæbjörnsdóttir , Eyjólfur Karl Eyjólfsson og Stefán ÓIafsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar