Lúsíuhátíðin Seltjarnarneskirkju

Lúsíuhátíðin Seltjarnarneskirkju

Kaupa Í körfu

Svíar á Íslandi héldu sína árlegu Lúsíuhátíð í Seltjarnarneskirkju um síðustu helgi en það var í 48. skiptið sem hátíðin er haldin á Íslandi. Lúsíuhátíðir eru haldnar á öllum vinnustöðum og í öllum skólum og leikskólum í Svíþjóð þann 13. desember og þá er yfirleitt ein stúlka í hlutverki Lúsíu og með kerti á höfðinu. Með henni er síðan Lúsíukór sem gengur inn í skrúðgöngu og syngur hátíðleg lög. MYNDATEXTI: Þátttakendur í Lúsíukórnum voru frá fjögurra ára og upp í fimmtugt en það er sjaldgæft í Svíþjóð að margar kynslóðir taki þátt í sama Lúsíukórnum og sömu Lúsíuskrúðgöngunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar