70 mín á Popp Tíví - Pétur, Sveppi og Auðunn

70 mín á Popp Tíví - Pétur, Sveppi og Auðunn

Kaupa Í körfu

70 mínútur fá liðsauka Pétur Jóhann Sigfússon (Pétur Ding Dong) mun frá og með morgundeginum slást í lið með þeim Audda og Sveppa í 70 mínútum. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við piltana, bæði í gamni og alvöru. ÞEIR Sveppi og Auddi hafa nú keyrt 70 mínútur sem tvíeyki í um eitt ár. Á morgun verða hins vegar vatnaskil þegar Pétur Jóhann Sigfússon, betur þekktur sem Pétur Ding Dong, slæst í hópinn. Hann hefur verið annar umsjónarmanna morgunþáttarins Ding Dong á FM957 til þessa og var síðasti þátturinn hans þar á föstudaginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar