Veggur reistur við Orkuveituna

Veggur reistur við Orkuveituna

Kaupa Í körfu

Traust eru handtökin hjá Strandamanninum Guðmundi Sigurðssyni sem með aðstoð véltækninnar meitlar niður grágrýti í skjólveggi sem verið er að hlaða á bílastæðinu við höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur á Bæjarhálsi. Guðmundur starfar þar ásamt syni sínum, Sigurði, og Bergsteini Arasyni í vinnuflokki annars Strandamanns og nágranna af Dröngum, Guðjóns Stefáns Kristinssonar, skrúðgarðyrkju- og steinhleðslumanns. Verkið er vel á veg komið og hafa allnokkrir vörubílar flutt grágrýtið að Orkuveituhúsinu frá Hrauni í Ölfusi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar