Kaffitár opnar í Njarðvík

Kaffitár opnar í Njarðvík

Kaupa Í körfu

Það fór þó aldrei svo að ekki væri boðið upp á sýnishorn af íslenskri hæversku og huggulegheitum í samkvæmislífinu þessa helgina. Skrapp í Reykjanesbæ til þess að fagna því að þar skyldi hinn framtakssami dugnaðarforkur Aðalheiður í Kaffitári hafa opnað heila verksmiðju til þess að sjá suðvesturhorninu, að minnsta kosti, fyrir almennilegum kaffidrykkjum. Mikið sem við Íslendingar höfum gert grín að Bretum og Bandaríkjamönnum fyrir að kunna ekki að drekka kaffi, einkum á meðan við vorum sjálf að bæta Export út í sullið okkar, sem við eyðilögðum svo með kaldri kúamjólk og strausykri. MYNDATEXTI: Hanna Helgadóttir, Auður Halldórsdóttir, Guðrún Einarsdóttir, Marta Richter, Eygló Bjarnadóttir og Ingibjörg Bjarnadóttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar