Dýrin í Hálsaskógi - 100 þúsundasti gesturinn

Dýrin í Hálsaskógi - 100 þúsundasti gesturinn

Kaupa Í körfu

Í GÆR var mikið um dýrðir í Þjóðleikhúsinu og var húsið undirlagt af Mikkum og Lillum. Sýnd var 50. sýning af Dýrunum í Hálsaskógi og 100 þúsundasti gesturinn mætti á sýninguna. Það eru því hundrað þúsund Íslendingar búnir að sjá þetta verk á þeim rúmlega fjörutíu árum sem liðin eru frá því að sýningin var fyrst sett upp, en verkið hefur alls fjórum sinnum verið sett upp. Þeir Árni Tryggvason, Bessi Bjarnason, Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason, Þröstur Leó Gunnarsson og Atli Rafn Sigurðarson afhentu 100 þúsundasta gestinum glaðning frá leikhúsinu, en þeir hafa allir brugðið sér í hlutverk MYNDATEXTI: "Lillarnir" og "Mikkarnir" ásamt sýningargestum. F.v.: Hanna Björg Finnbogadóttir, Karen Ýr Finnbogadóttir, Guðrún Selma Steinarsdóttir (100 þúsundasti gesturinn) og Bylgja Björk Steinarsdóttir sem heldur á Steinari Erni Finnbogasyni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar