Árnes

Árnes

Kaupa Í körfu

Frá og með Hafnardeginum, sem haldinn verður hátíðlegur í dag, verður hægt að gæða sér að gómsætum réttum um borð í Árnesinu, sem er eina fljótandi veitingahúsið á Íslandi. Skipið liggur við landfestar við Suðurbugt, undan Hafnarbúðum við Reykjavíkurhöfn. Veitingareksturinn verður í höndum Önnu Guðmundsdóttur og barna hennar, Bjarna og Örnu Gunnarsbörnum. Alls tekur skipið yfir eitt hundrað manns í sæti í þremur sölum og er Bjarni framkvæmdastjóri staðarins MYNDATEXTI: Árnesið: Þjónar nú sem fljótandi veitingahús við Suðurbugt í Reykjavíkurhöfn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar