Ísland - Liechtenstein - Landsleikur

Ísland - Liechtenstein - Landsleikur

Kaupa Í körfu

Hinn nítján ára gamli Andri Lucas Guðjohnsen innsiglaði stórsigur Íslands á Liechtenstein, 4:0, í undankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta á Laugardalsvellinum í gærkvöld þegar hann skoraði síðasta mark íslenska liðsins eftir sendingu frá bróður sínum, Sveini Aroni Guðjohnsen. Bræðurnir féllust að vonum í faðma eftir markið. Albert Guðmundsson skoraði tvö mörk og Stefán Teitur Þórðarson eitt í þessum síðasta heimaleik Íslands í keppninni frammi fyrir um 4.500 áhorfendum sem voru vel með á nótunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar