Slökkviliðið - Þrískiptar vaktir - Stock myndir

Slökkviliðið - Þrískiptar vaktir - Stock myndir

Kaupa Í körfu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur tekið upp nýtt vaktakerfi sem byggist á þrískiptum vöktum á virkum dögum og tvískiptum um helgar. Með þessu á að koma til móts við styttingu vinnutíma sem samið var um í síðustu kjarasamningum og aukið álag. Nýja fyrirkomulagið var kynnt í gær en flest atvinnuslökkvilið landsins hafa tekið upp sambærilegt vaktakerfi. Í nýrri skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að um helmingur slökkviliðanna uppfyllir ekki settar kröfur til að geta sinnt reykköfun og slökkvistarfi innanhúss, ýmist vegna búnaðar, þjálfunar, menntunar eða hæfnisskilyrða starfs- manna

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar