Pourquoi Pas

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Pourquoi Pas

Kaupa Í körfu

Flaggskip frönsku hafrannsóknastofnunarinnar, Porquoi Pas? V, kom til Reykjavíkur í fyrradag. Porquoi Pas? ber nafn skips Jean-Baptistes Charcots landkönnuðar, sem fórst hér við land 16. september 1936 ásamt 39 öðrum úr áhöfn skipsins. Pourquoi Pas? er fimmta rannsóknarskipið með því nafni. Flaggskipið kom hingað til lands í fyrsta skipti árið 2012. Pálmi Jóhannesson, upplýsingafulltrúi franska sendiráðsins í Reykjavík, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að Pourquoi Pas? myndi hafa skamma viðdvöl hér að þessu sinni, en það væri væntanlegt aftur til Reykjavíkur 16. september nk. þegar þess verður minnst með ýmiss konar viðburðum að 80 ár eru liðin frá því að Pourquoi Pas? IV fórst við Íslandsstrendur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar