Þorramatur í Múlakaffi

Ragnar Axelsson

Þorramatur í Múlakaffi

Kaupa Í körfu

Þorramaturinn er alltaf vinsæll, það er ákveðin stemning sem fylgir þessum árstíma og súrmaturinn er hluti af henni," segir Guðjón Harðarson, yfirmatreiðslumeistari hjá Múlakaffi, en þar er undirbúningur fyrir þorrann, með tilheyrandi góðgæti, kominn á fullt. "Við byrjum í september að sjóða niður súrmatinn, þegar sláturtíð hefst og núna erum við að undirbúa sviðasultuna, saltkjötið og laga síldina." Myndatexti: Þórður Þorgeirsson þefar af hangikjötinu og Guðjón Harðarson yfirmatreiðslumaður sker súrmatinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar