Orkuveitan

Orkuveitan

Kaupa Í körfu

Nýjar höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls hafa að sögn starfsmanna reynst ákaflega vel, enda hátt til lofts og vítt til veggja. Þó hefur gætt ákveðins misskilnings vegfarenda um fyrstu hæðina, þar sem eftirlits- og stjórnstöð með veitukerfunum er m.a. til húsa, og fólk gengið á glerveggi sem skilja rýmin að, bæði börn og fullorðnir. Því gripu starfsmenn til þess ráðs að líma upp varúðarspjöld til að koma í veg fyrir að fólk gengi á glerveggina. Hér sýnir Anna Kristjánsdóttir, starfsmaður í stjórnstöð OR, hvernig veggirnir hafa stundum virkað.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar