Árni, Runólfur, Linda og Sigríður - Þorrablót

Jónas Erlendsson

Árni, Runólfur, Linda og Sigríður - Þorrablót

Kaupa Í körfu

Hópur hestamanna, sem er með sameiginleg hesthús vestast í Víkurkauptúni í Mýrdal, hélt þorrablót í hesthúsunum. Eftir að hópurinn hafði farið í góðan útreiðartúr eftir fjörunni og austur að Víkurkletti var haldið til hesthúsanna þar sem búið var að hlaða á borðin þorramat sem var síðan snæddur af bestu lyst. MYNDATEXTI: Árni Sigurjónsson, Runólfur Sæmundsson, Linda Lorange og Sigríður D. Árnadóttir kunnu að meta matinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar