Droplaugarstaðir - Leikskólinn Sólhlíð

Droplaugarstaðir - Leikskólinn Sólhlíð

Kaupa Í körfu

Börn og kennarar á leikskólanum Sólhlíð lögðu í gær leið sína á hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði, þar sem börnin héldu listahátíð fyrir heimilisfólk. Litlir hljóðfæraleikarar úr Suzuki skólanum létu ljós sitt skína og léku á píanó, fiðlu og selló sígild lög eins og Rússakónginn og Kópavog Hopp-stopp svo fátt eitt sé talið. Að hljóðfæraleiknum loknum tóku börnin til við að syngja nokkur lög og voru á endanum klöppuð upp af afar þakklátum hópi eldri kynslóðarinnar sem kunni vel að meta þessa kærkomnu nýbreytni. MYNDATEXTI: Fagurlega leikið á selló: Agnes Edda Gylfadóttir lét ljós sitt skína fyrir þakklátt heimilisfólkið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar