Þuríður og Brúskur

Þuríður og Brúskur

Kaupa Í körfu

FAGNAÐARFUNDIR urðu í gær þegar Þuríður Kristjánsdóttir prófarkalesari hitti aftur dísarpáfagaukinn Brúsk, sem flaug í fyrradag út um glugga á íbúð fjölskyldunnar í Hraunbænum í Árbæ. Hafði hann þá haldið, í stundarbrjálæði víðáttunnar, út í buskann, eigendum sínum til mikillar skelfingar. Var fjölskyldunni mjög brugðið við þennan skyndilega aðskilnað, þar sem páfagaukar eru ekki kuldaþolnir fuglar og eiga litlar lífslíkur í óblíðu veðurfari Íslands. Var því ákveðið að nýta sér nærtækasta samhjálpartækið, Velvakanda í Morgunblaðinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar